 
Umhirða og viðhald
Í höfuðtólinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. 
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað 
að betri endingu. 
•
Alla fylgihluti skal geyma þar sem börn ná ekki til.
•
Halda skal höfuðtólinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni 
sem tæra rafrásirnar.
•
Ekki má nota höfuðtólið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu 
hlutirnir í því geta skemmst.
•
Ekki má geyma höfuðtólið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu 
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
•
Ekki má geyma höfuðtólið á köldum stað. Þegar það hitnar (upp að eðlilegu hitastigi) 
getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
•
Ekki skal reyna að opna höfuðtólið. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt það.
•
Höfuðtólinu má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur 
skemmt innri rafrásaspjöld. 
•
Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa 
höfuðtólið. 
•
Ekki má mála höfuðtólið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg 
fyrir að þeir vinni rétt.
Ef höfuðtólið vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda þjónustuaðila Starfsfólk þar 
aðstoðar notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.