Nokia Wireless Clip on Headset HS 3W - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún
gengur úr sér. Þegar vinnslutími (taltími og biðtími) er orðinn áberandi stuttur er tímabært
að kaupa nýja rafhlöðu.

Aðeins má nota rafhlöður sem samþykktar eru af framleiðandanum og aðeins skal
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem framleiðandinn hefur samþykkt. Taka skal
hleðslutækið úr sambandi þegar það er ekki í notkun. Óráðlegt er að rafhlaða sé tengd
hleðslutæki lengur en vikutíma þar sem ofhleðsla getur stytt endingartíma hennar.
Fullhlaðin rafhlaða afhleðst sjálfkrafa með tímanum ef hún er ekki í notkun.

Sveiflur í hitastigi geta haft áhrif á hleðslugetu rafhlöðunnar.

Aðeins má nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir
slysni þegar málmhlutur (mynt, bréfaklemma eða penni) veldur beinni tengingu milli + og -
skautanna á rafhlöðunni (málmrandanna á rafhlöðunni), til dæmis þegar vararafhlaða er
höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni
eða hlutnum sem veldur tengingunni.

background image

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

22

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða
vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf
höfð í hita á bilinu frá 15 ° C að 25 °C (frá 59 F° að 77 F°). Höfuðtól með of heitri eða of kaldri
rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið
frost áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld!

Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundnar reglugerðir (t.d. um endurvinnslu). Ekki má
fleygja þeim með heimilisúrgangi.

background image

23

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.